Skilgreining á færi
Púðursnjór:
Laus þurr snjór, snjóað hefur í logni.
Troðinn púðursnjór:
Laus þurr snjór sem hefur verið troðinn.
Troðinn þurr snjór:
Nýr snjór eða þurr foksnjór.
Harðpakkaður snjór:
Nokkurra daga gamall þurr snjór sem hefur verið troðinn nokkrum sinnum.
Troðinn blautur snjór:
Snjóboltasnjór.
Harðfenni:
Snjórinn hefur blotnað og fryst aftur, ekki búið að snjóa lengi.
Unnið harðfenni:
Mulinn snjór, búið er vinna upp brekkurnar með troðara.
Vorfæri:
Grófkorna snjór, oft á tíðum hart yfirborð að morgni en sólbráð er líður á daginn.
Framleiddur snjór:
Oftast nefndur gervisnjór en það er villandi þar sem um snjó er að ræða sem framleiddur er með því að sprauta fínum vatnsúða upp í loftið með sérstökum snjóbyssum.